Netverslun sem
selur.

Sérsniðnar netverslanir í Next.js með Shopify eða WooCommerce. Íslenskar greiðslugáttir, hraðar hleðslutímar og farsímamiðuð hönnun.

Við vitum hvað við erum að gera.

Skýrt ferli frá fyrsta fundi til opnunar svo þú veist alltaf hvar verkefnið stendur.

01

Kynning og greining

Við skoðum vörurnar þínar, markhópinn og samkeppnina. Útkoman er skýr áætlun um hvaða kerfi hentar og hvað þarf að gera.

02

Hönnun

Við hönnum kaupferli og útlit í Figma. Sérhvert skref, frá vörulista til greiðslu, er fínpússað með umbreytingarhlutfall í huga.

03

Þróun og samþætting

Við byggjum í Next.js og tengjum við Shopify eða WooCommerce. Greiðslugáttir, sendingarlausnir og birgðastjórnun eru tengd og prófuð.

04

Afhending og þjónusta

Við afhendum, þjálfum ef þarf og erum til staðar þegar þú þarft uppfærslur. Netverslunin þín er alltaf í góðum höndum.

Allt sem þarf til að selja á netinu.

Hraðar hleðslutímar

Core Web Vitals í lagi. Hröð netverslun selur meira. Hver sekúnda í seinkun dregur úr umbreytingarhlutfalli og þolinmæði kaupenda.

Farsímamiðuð hönnun

Meirihluti Íslendinga sem verslar á netinu gerir það í símanum. Við hönnum kaupferlið með farsímann í huga fyrst.

Íslenskar greiðslugáttir

Við tengjum Rapyd, Straumur, Landsbankinn, Netgíró og fleiri. Kaupendur geta greitt með þeim hætti sem þeir þekkja.

Sendingarlausnir

Tenging við Pósturinn, Dropp og aðrar sendingarlausnir. Sjálfvirk verðlagning og pöntunarmóttak eru tengd og prófuð.

Leitarvélabestun

Vörulýsingar, structured data og canonical slóðir eru í lagi frá fyrsta degi þannig að leitarvélar finni vörurnar þínar.

Greining og mælingar

Við tengjum Google Analytics og Meta Pixel þannig að þú getur séð hvernig kaupendur hegða sér og hvað þarf að bæta.

Shopify eða WooCommerce. Við ráðleggjum.

Bæði kerfin selja vel. Munurinn snýst um hver rekur kerfið, hvernig þú borgar og hversu langt þú vilt ganga í sérlausnum. Hér er munurinn á mannamáli.

Tilbúið kerfi sem Shopify rekur fyrir þig. Þú borgar fast mánaðargjald og þarft aldrei að hugsa um netþjóna, uppfærslur eða öryggi.

  • Þú bætir við vörum, myndum og verðum í einföldu viðmóti sem þarf enga tækniþekkingu
  • Uppfærslur og öryggi gerast sjálfkrafa í bakgrunni án þess að þú takir eftir því
  • Posinn í búðinni og netverslunin deila sama lager svo tölurnar stemma alltaf
  • Þúsundir tilbúinna viðbóta fyrir póstlista, umsagnir, gjafabréf og fleira
  • Íslenskar greiðslugáttir tengjast í gegnum samstarfsaðila Shopify
  • Shopify sinnir þjónustu allan sólarhringinn ef eitthvað kemur upp á

Shopify er fljótlegra og einfaldara í daglegri notkun og tengist flestum kerfum vandræðalaust. Við mælum með því ef þú vilt byrja að selja strax og halda umsýslunni í lágmarki.

Opinn hugbúnaður sem situr á þínum eigin vef. Enginn leyfiskostnaður, við sjáum um reksturinn og þú ræður hvernig verslunin virkar.

  • Þú átt verslunina og öll gögnin sjálfur og getur flutt þau hvert sem er
  • Beinar tengingar við íslenskar greiðslugáttir, Póstinn og Dropp
  • Afslættir, vöruflokkar og verð eru sniðin nákvæmlega að þínum rekstri
  • Vinnur með WordPress vefnum og efninu sem þú ert nú þegar með
  • Tenging við bókhaldskerfi eins og Reglu, Uniconta og DK
  • Við sjáum um uppfærslur, vöktun og öryggisafrit í stýrðri hýsingu

WooCommerce gefur mun meiri sveigjanleika og nánast allt er hægt að sérsníða. Við mælum með því ef verslunin þarf að virka nákvæmlega eftir þínu höfði og vaxa með rekstrinum.

Ekki viss hvort kerfið hentar þér? Við förum yfir reksturinn og mælum með því sem passar.

Fá ráðgjöf

Tengist kerfunum sem þú ert þegar með.

Við höfum reynslu af öllum helstu íslenskum greiðslugáttum og sendingarlausnum.

Blikk greiðslugátt fyrir netverslanir
PayPal greiðslugátt fyrir netverslanir
Blikk greiðslugátt fyrir netverslanir
PayPal greiðslugátt fyrir netverslanir
Blikk greiðslugátt fyrir netverslanir
PayPal greiðslugátt fyrir netverslanir
Blikk greiðslugátt fyrir netverslanir
PayPal greiðslugátt fyrir netverslanir
Blikk greiðslugátt fyrir netverslanir
PayPal greiðslugátt fyrir netverslanir

Við látum verkefnin okkar tala.

Við svörum, þú byrjar.

8+Greiðslugáttiríslenskar og erlendar
6 vikurMeðalafhendingartímifrá kynningarfundi
FaglegÞjónustaíslenskt fagfólk
100%Íslensk vinnaunnið hér heima

Við erum tilbúin að hlusta.

Segðu okkur frá versluninni þinni og við svörum þér með föstu tilboði.

Fá tilboð