Byrjaðu hér.
Stækkaðu hér.
Öll innviðaþjónusta sem þú þarft á einum stað og á einum reikningi. Við erum frumkvöðlavæn og finnum lausn sem hentar þinni stöðu.
Við sjáum um innviðina. Þú sérð um vöruna.
Tölvupóstur á þínu eigin léni
Faglegur tölvupóstur á þínu eigin léni. Ruslpóstvörn, full samhæfni við Outlook og stuðningur við farsíma.
Lénaskráning og DNS
Við skráum og sjáum um lénin þín og DNS vistunina svo þú þarft ekki að muna hvenær eitthvað rennur út.
Vefhýsing
Hröð vefhýsing á NVMe SSD með SSL, tölvupósti og daglegum öryggisafritum. Tilbúið á mínútum.
Sýndarþjónar
KVM sýndarþjónar með fullum rótaraðgangi fyrir sérsniðinn hugbúnað, gagnagrunna eða þróunarumhverfi.
Dagleg öryggisafrit
14 daga öryggisafrit af öllum gögnum. Ef eitthvað fer úrskeiðis getum við snúið tímanum aftur.
Eitt yfirlit yfir allt
Stjórnaðu allri þjónustunni á einum stað. Einn reikningur, ein innskráning, einn tengiliður.
Íslenskt þjónustuteymi
Þú talar við mannfólk, ekki vélmenni. Íslenskt tækniteymi svarar á skrifstofutíma og bakvakt tekur við ef alvarleg bilun kemur upp utan hans.
Í loftið á klukkutíma
Við sjáum um alla uppsetninguna. Vefhýsing, DNS og tölvupóstur eru tilbúin innan klukkutíma svo þú getir byrjað strax.
Einn reikningur. Allt á einum stað.
Sem frumkvöðull ertu nú þegar með mörg járn í eldinum. Þú átt ekki að þurfa að elta marga þjónustuaðila, missa af greiðslum eða leysa tæknileg vandamál.
Við setjum allt upp, vöktum allt og þú færð einn reikning í hverjum mánuði. Ef eitthvað kemur upp á sér íslenska þjónustuteymið okkar strax um málið.
Hvað er innifalið
- Vefhýsing og SSL á öll lén
- Lénaskráning og DNS vistun
- Tölvupóstur á þínu eigin léni
- Sýndarþjónar ef þörf er á
- Dagleg öryggisafrit
- Forgangsþjónusta þegar þú þarft á okkur að halda
Við erum frumkvöðlavæn.
Ekkert uppsetningargjald
Við rukkum ekki fyrir uppsetningu. Þú greiðir aðeins mánaðargjaldið og ferð strax af stað.
Einn reikningur
Tölvupóstur, lén, hýsing og þjónar á einum reikningi á mánuði. Uppfærðu, minnkaðu eða segðu upp hvenær sem er.
Við þekkjum til þín
Við erum lítið teymi og kynnumst hverjum og einum viðskiptavini. Þú hringir ekki í símaver.
Við svörum, þú byrjar.
Við erum með þér frá fyrsta degi.
Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þinni stöðu í dag.